Teya
  • Almennir skilmálar
  • Viðskiptaskilmálar Teya
  • Persónuvernd
  • Persónuverndarstefna Teya
  • Vinnslusamningur Teya
  • Vefkökustefna Teya
  • Netspjall Teya
  • Skilmálar kortafélaga
  • Viðskiptaskilmálar American Express
  • Reglur um birtingu skilmála á netinu um afbókanir og vöruskil
  • Reglur um hótel og gististaði
  • Reglur American Express um bílaleigur
  • Reglur Mastercard um bílaleigur
  • Reglur Visa um bílaleigur
  • Almennt
  • Verðskrá
  • Teya þjónustugjöld
  • Reglur Mastercard um bílaleigur

    last updated: May 9, 2023

    I. Sérstakar reglur Mastercard um bílaleigur

    Við upphaf leigu bifreiðar má bílaleiga sækja um heimild á kort leigutaka fyrir áætlaðri upphæð leigukostnaðar. Heimild sem veitt er gildir út leigutíma bifreiðar. Áætluð heildarupphæð heimildarbeiðni má ekki innihalda kostnað vegna sjálfsábyrgðar eða mögulegs tjóns. Ef endanlegur leigukostnaður fer umfram upphæð heimildar ber að sækja um nýja heimild fyrir mismuninum.

    Skuldfærsla vegna tjóns og sjálfsábyrgða

    Ef í ljós kemur við skil á bifreið að hún hefur orðið fyrir tjóni á leigutíma má bílaleiga skuldfæra korthafa um upphæð tjónamats að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:

    - Að skuldfærsla vegna tjóns sé aðskilin skuldfærslu vegna leigu eða leigukostnaðar.

    - Að fyrir liggi undirritað samþykki korthafa á skuldfærslu tjónsupphæðar s.s. PIN staðfest eða undirrituð kortalesin greiðslukvittun. Undirskrift ákvæðis í leigusamningi þar sem áskilinn er réttur leigusala til að skuldfæra korthafa uppfyllir ekki skilyrði um skriflegt samþykki fyrir skuldfærslu tjóns.

    Ef raunkostnaður vegna tjónsins reynist lægri en korthafi var skuldfærður fyrir ber bílaleigu að endurgreiða korthafa mismuninn innan 30 daga.

    Athugasemd vegna kortafærslu

    Ef endurkrafa eða fyrirspurn berst vegna skuldfærslu tjóns ber bílaleigu að senda Borgun afrit af eftirfarandi skjölum:

    - Undirrituðum leigusamningi ásamt lokasamningi

    - Tjónamati frá viðurkenndu verkstæði

    - Lögregluskýrslu ef við á

    - Samþykkt korthafa fyrir skuldfærslu tjóns

    - Færslukvittun

    - Skilmálum bílaleigu

    Skilmálar

    Skilmála bílaleigu ber að birta korthafa við bókun þjónustu áður en bókun/kaupum á netinu er lokið. Skilmálana ber að birta í sama glugga og bókun/kaup eru staðfest. Óheimilt er að birta skilmála í sér glugga eða á vefslóð. Skilmála ber einnig að senda korthafa í tölvupósti með bókunarstaðfestingu. Skilmála bílaleigu á pappír ber að kynna fyrir korthafa og hann verður að samþykkja með undirskrift sinni á sömu blaðsíðu og skilmálarnir eru tíundaðir.

    Ef korthafi samþykkir tryggingu bílaleigu (CDW) þarf tryggingin að vera staðfest sérstaklega af leigutaka með upphafsstöfum hans, þar sem undirritun leigusamnings tekur ekki til þessa ákvæðis.

    Leigusamningar

    Bílaleiga verður sjálf að sjá til þess að samningar hennar standist kröfur dómstóla, þar sem í sumum tilfellum er það eina úrræði bílaleigu til að innheimta kostnað vegna tjóns bílaleigubifreiðar.

    Ef nánari upplýsinga er óskað vinsamlega hafið samband við Þjónustuver Teya í síma +354 560 1600 eða sendið tölvupóst á hjalp@teya.com.

    Ofangreind atriði eru unnin eftir reglum frá Mastercard og geta tekið breytingum eftir útgáfu þessa bréfs.

    Copyright © Teya Services Ltd. 2023